Psalms 116

1Ég elska Drottin, af því að hann heyrir grátbeiðni mína. 2Hann hefir hneigt eyra sitt að mér, og alla ævi vil ég ákalla hann. 3Snörur dauðans umkringdu mig, angist Heljar mætti mér, ég mætti nauðum og harmi. 4Þá ákallaði ég nafn Drottins: ,,Ó, Drottinn, bjarga sál minni!`` 5Náðugur er Drottinn og réttlátur, og vor Guð er miskunnsamur. 6Drottinn varðveitir varnarlausa, þegar ég var máttvana hjálpaði hann mér. 7Verð þú aftur róleg, sála mín, því að Drottinn gjörir vel til þín. 8Já, þú hreifst sál mína frá dauða, auga mitt frá gráti, fót minn frá hrösun. 9Ég geng frammi fyrir Drottni á landi lifenda. 10Ég trúði, þó ég segði: ,,Ég er mjög beygður.`` 11Ég sagði í angist minni: ,,Allir menn ljúga.`` 12Hvað á ég að gjalda Drottni fyrir allar velgjörðir hans við mig? 13Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins. 14Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans. 15Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans. 16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn, ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína. 17Þér færi ég þakkarfórn og ákalla nafn Drottins. 18Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans, 19í forgörðum húss Drottins, í þér, Jerúsalem. Halelúja.
Copyright information for Icelandic